Á næstu dögum/viku fer fram ytra mat á skólastarfi í Jörfa, en samkvæmt lögum um leikskóla 90/2008 17. gr.- 20. gr. er gert ráð fyrir bæði innra og ytra mati og eftirliti á gæðum starfs í leikskólum. Með ytra mati er átt við úttekt á starfsemi stofnunnar sem unnin er af utanaðkomandi aðilum, s.s. sveitarfélögum og/eða menntamálaráðuneyti.
Skipulagsdagar á haustönn 2019

Skipulagsdagar í Jörfa á haustönn eru sem hér segir:
- föstudaginn 13. september
- föstudaginn 22. nóvember